fbpx
Þriðjudagur, desember 17, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniRótarýdagurinn er á laugardaginn

Rótarýdagurinn er á laugardaginn

Hafnfirskir rótarýfélagar bjóða bæjarbúum á listsýningu í Ástjarnarkirkju

Rótarýdagurinn er haldinn á laugar­dag og taka þátt í honum rótarýklúbbar víðs vegar um land. Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar vekur athygli á starfi síns klúbbs með listsýningu í Ástjarnarkirkju og Rótarýmessu.

Listsýning í Ástjarnarkirkju

Á sýningunni verða til sýnis fjölmörg listaverk og handverk rótarýfélaga í klúbbnum og látinna rótarýfélaga. Meðal kunnra listamanna má nefna Gunnar Hjaltason, Bjarna Jónsson og Sigurbjörn Kristinsson en þeir voru afkastamiklir listamenn og sýndu víða. Gunnar teiknaði iðulega á klúbbfundum með tússpenna á servíettur, landslags­teikningar sem tengdust oft sessu­nautum hans sem hann svo gaf í lokin. Bjarni teiknaði alla klúbbfélaga og eru til skemmtilegar teikningar eftir hann. Sigurbjörn átti margar myndir á jóla­merkj­um klúbbsins sem og hinir tveir en einnig Níels Árnason sem kenndur var við Hafnarfjarðarbíó.
Af núverandi klúbbfélögum sem eiga verk á sýningunni má nefna Sigurð Einarsson arkitekt, J. Pálma Hinriksson ráðgjafa, Daníel Sigurðsson hönnuð, Ingvar Jónsson fv. íþróttafulltrúa og Trausta Sveinbjörnsson, rafiðnfræðing.

Sýningin verður opnuð á laugardag kl. 14 og stendur til kl. 17 í Ásvallakirkju en Rótarýmessa verður kl. 11 á sunnu­daginn en sýningin verður opin þá til kl. 14.

Tveir rótarýklúbbar í Hafnarfirði

Tveir rótarýklúbbar eru starfandi í Hafnarfirði, Rótarýklúbbur Hafnar­fjarðar sem stofnaður var 1946 og Rótarý­­­klúbburinn Straumur sem stofn­að­ur var 1997. Rótarýklúbbur Hafnar­fjarðar fundar vikulega í hádeginu á fimmtudögum í Turninum í Firði en Straumur fundar kl. 7 á morgnana á fimmtudögum í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Hafnar­firði.

Starfsgreinaklúbbar

Skiptinemar á fundi Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar

Rótarý er hreyfing fólks úr viðskipta- og atvinnulífi og opinberri þjónustu. Rótarýhreyfingin er alþjóðafélags­skapur sem er starfandi í meira en 200 löndum í öllum heimsálfum.
Félagar eru rúmlega 1,2 milljónir í um 35 þúsund klúbbum.

Þessi alþjóðlegu samtök standa fyrir mannúðar- og menningarstarfi, stuðla að sem bestu siðgæði í öllum starfs­greinum og hvetja til góðvildar og friðar í heiminum. Til marks um það er opinbert kjörorð alþjóðahreyfingar­innar: „Þjónusta ofar eigin hag“.

Á Íslandi er 31 rótarýklúbbur með um 1300 félaga. Í klúbbunum er lifandi starf og vikulegir fundir með fróðlegum fyrirlestrum og umræðu. Reynt er að hafa fulltrúa sem flestra atvinnugreina í hverjum klúbbi og koma klúbbfélagar með tillögur um nýja félaga. Félagar eru á öllum aldri og af báðum kynjum. Rótarýfélagi getur sótt rótarýfund hjá hvaða rótarýklúbbi sem er í heiminum.

Fróðleikur á fundum

Erindi flutt á útifundi í Rótarýlundinum í upplandi Hafnarfjarðar

Rótarýfélagar leggja áherslu á að kynnast viðfangsefnum hinna ýmsu starfsstétta og fara í heimsóknir í fyrir­tæki og stofnanir til að bæta við þekk­ingu sína. Félagar í klúbbunum hafa tækifæri að fræðast um athyglisverða hluti hvers tíma og taka þátt í umræðum um þá á fundum sínum. Vandaðir fyrir­lestrar um mikilvæg mál á öllum sviðum þjóðlífsins eru aðdráttarafl, sem ásamt öðru laðar fólk til þátttöku.

Fjórprófið

Árið 1932 kom fyrst fram Fjórpróf rótarýfélaga, samviskuspurningar sem félagar voru voru hvattir til að spyrja sig við ákvarðanatökur í starfi sínu. Það var samið af rótarýfélaganum Herbert J. Taylor sem síðar varð heimsforseti Rótarý. Rótarýhreyfingin gerði Fjór­prófið að formlegum þætti í starfinu og víða er farið með það í lok funda. Það hefur verið þýtt á flest tungumál og er í íslenskri þýðingu svona:

  1. Er það satt og rétt?
  2. Er það drengilegt?
  3. Eykur það velvild og vinarhug?
  4. Er það öllum til góðs.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2