Alzheimersamtökin fagna 40 ára afmæli í ár.
Af því tilefni halda samtökin glæsilega styrktartónleika í Bæjarbíói, sunnudaginn 16. mars klukkan 19.
Tónlistarfólkið Bjarni Ara, Klara Elías, Eyjólfur Kristjánsson og Guðrún Árný flytja hugljúfa tóna fyrir gesti.
Hin glaðværa Eva Ruza verður kynnir kvöldsins. Öll sem koma fram gefa vinnu sína.
Notaleg kvöldstund
Tónlist hefur töframátt og getur skapað einstakt augnablik fyrir þau sem glíma við heilabilun, aðstandendur þeirra og alla tónlistarunnendur. Þetta kvöld er því tækifæri til að eiga notalega kvöldstund þar sem tónlist, söngur og gleði ráða ríkjum.
Styrkur
Með miðakaupum styðja gestir mikilvægt starf Alzheimersamtakanna við einstaklinga sem glíma við heilabilun og aðstandendur þeirra.
Miðar eru seldir á tix.is.