fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÁ döfinniFræðslustund í Hafnarborg fyrir eldri borgara

Fræðslustund í Hafnarborg fyrir eldri borgara

Hafnarborg leggur áherslu á að gefa öllum tækifæri til að kynnast menningu og listum og býður upp á leiðsagnir fyrir alla aldurshópa.

Sjónarhorn eru fræðslustundir ætlaðar eldra fólki, sem hefur áhuga á menningu og listum, til að fræðast um starfsemi Hafnarborgar, yfirstandandi sýningar eða einstök verk úr safneign.

Á miðvikudag, 13. apríl kl. 14, verður fjallað ítarlega um valin verk úr safneign Hafnarborgar, sem telur nú tæplega 1600 verk, unnin með fjölbreyttum aðferðum. Þar má meðal annars finna málverk, teikningar, þrívíð verk og vídeóverk, auk þess sem safnið hefur umsjón með útilistaverkum Hafnarfjarðar.

Hægt er að skrá sig í síma 585 5790 eða með því að senda póst á netfangið hafnarborg@hafnafjordur.is. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti í Hafnarborg að lokinni dagskrá. Aðgangur er ókeypis.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2