fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimÁ döfinniFyrirlestur um Guðjón Samúelsson

Fyrirlestur um Guðjón Samúelsson

Í Hafnarborg þriðjudaginn 3. desember kl. 20

Á þriðjudaginn kl. 20 mun Pétur H. Ármannsson, arkitekt og sýningarstjóri, flytja fyrirlestur um Guðjón Samúelsson, undir yfirskriftinni Byggingarlist Guðjóns Samúelssonar – hliðstæður og áhrifavaldar, í tengslum við yfirlitssýningu á verkum húsameistarans, sem nú stendur yfir í Hafnarborg.

Guðjón Samúelsson er eflaust kunnastur fyrir tilraunir sínar til að móta sérþjóðlegan, íslenskan byggingarstíl. Sem arkitekt var hann þó ekki síður brautryðjandi nýrra alþjóðlegra hugmynda í húsagerð og borgarskipulagi. Í fyrirlestri Péturs verður sjónum beint að þeim straumum og stefnum í byggingarlist á fyrri hluta 20. aldar sem beint og óbeint höfðu áhrif á verk Guðjóns.

Guðjón var vissulega frumkvöðull á mörgum sviðum og átti veigamikinn þátt í nútímavæðingu íslensks samfélags. Opinber staða hans gaf honum einstakt tækifæri til áhrifa á byggingar- og skipulagsmál heillar þjóðar sem fáum arkitektum hefur hlotnast fyrr né síðar. Fyrir þjóð sem aldrei eignaðist gotneskar kirkjur eða hallir í klassískum stíl hafa verk Guðjóns sérstaka þýðingu.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Úr tilkynningu.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2