Markaðsstofa Hafnarfjarðar verður með „fyrirtækjahitting“ með hafnfirskum fyrirtækjum á morgun, miðvikudaginn 8. mars kl. 15.
Viktoría Jensdóttir sem starfar sem Leanmeistari Landspítala Háskólasjúkrahúss kemur og fjallar um „Lean: leynast tækifæri til umbóta á skrifstofu fyrirtækisins?“
Viktoría kynnir grunnhugmyndafræði Lean og eins verða tækifærin til umbóta á skrifstofunni gerð skýr og eftirsóknarverð. Þátttakendur fá auk þess nokkur hagnýt verkfæri til að hefja umbætur á skrifstofunni strax.
Fyrirtækjahittingur MsH er opinn öllum hafnfirskum fyrirtækjum.
Aðgangur ókeypis fyrir þá sem aðild eiga að MsH en aðrir greiða 1.500 kr.
Boðið verður upp á síðdegishressingu. Skráning á asa@msh.is
Sjá viðburð á Facebook