Bæjarlistamaðurinn Björn Thoroddsen býður gestum og gangandi að koma í garðveislu við hús sitt við Hringbraut 63, laugardaginn 16. júlí kl. 15, á meðan garðrúm leyfir.
Veislan verður í formi tónleika þar sem eftirfarandi tónlistarmenn stíga á stokk með Bjössa:
- Hera Björk
- Laufið
- Svavar Ellerts
- Trausti Harðar
- Jens Pétur
- Geiri Gunnars
- Jói Helga
- Geiri Óskars
- Hálfdán Árna.