fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimÁ döfinniHerdís Anna syngur aríur á hádegistónleikum með Antoníu Hevesi

Herdís Anna syngur aríur á hádegistónleikum með Antoníu Hevesi

Tónleikar á þriðjudaginn kl. 12

Á þriðjudaginn kl. 12 syngur Herdís Anna Jónasdóttir, sópran, á fyrstu hádegistónleikum ársins í Hafnarborg. Á tónleikunum flytur Herdís aríur eftir Verdi, Bellini og Donizetti við undirleik Antoníu Hevesi

Herdís Anna Jónasdóttir lagði stund á fiðlu, píanó og söng frá unga aldri við Tónlistarskóla Ísafjarðar. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands með BA gráðu í söng og hélt til Berlínar í nám við Hanns-Eisler tónlistarháskólann. Hún lauk Konzertexamen-prófi árið 2012 með ágætiseinkunn og var þá ráðin að óperustúdíóinu við Óperuna í Zürich. Herdís var fastráðin við Ríkisleikhúsið í Saarbrücken í Þýskalandi árin 2013-2018 en er núna sjálfstætt starfandi og búsett í Berlín. Árið 2012 söng hún hlutverk Musettu í La bohème með Íslensku óperunni og síðasta vetur söng hún einnig hlutverk Víólettu Valery í La traviata í Hörpu en fyrir frammistöðu sína þar hlaut Herdís Grímuverðlaunin sem Söngvari ársins.

Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, þar sem hún hefur fengið marga af fremstu söngvurum landsins til liðs við sig. Hádegistónleikar eru á dagskrá Hafnarborgar fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis.

Þessi kynning er EKKI kostuð af Hafnarborg/Hafnarfjarðarbæ

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2