fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimÁ döfinniÍslenskir slagarar á Vortónleikum Lúðrasveitar Hafnarfjarðar

Íslenskir slagarar á Vortónleikum Lúðrasveitar Hafnarfjarðar

Lúðrasveit Hafnarfjarðar blæs til vortónleika laugardaginn 20. apríl næstkomandi.

Tónleikarnir verða haldnir í Víðistaðakirkju og hefjast þeir kl. 14.

Á efnisskránni verður tónlist úr ýmsum áttum: íslensk lög, dixieland, marsar og kvikmyndatónlist. Fluttar verða nýjar útsetningar Rúnars Óskarssonar og Eiríks Rafns Stefánssonar á íslenskum slögurum úr smiðjum Stuðmanna og Magnúsar Eiríkssonar, og Kristín Þóra Pétursdóttir leikur einleik í Clarinet on the Town eftir Ralph Hermann.

Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.

Miða má nálgast í forsölu hjá lúðrasveitarfélögum fram að tónleikadegi og við innganginn þegar þar að kemur. Ekki verður posi við innganginn.

Nánari upplýsingar um lúðrasveitina og starfsemi hennar eru á vefnum ludrasveit.is

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2