fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimÁ döfinniÍvar Helgason er gestur Antoníu Hevesi á hádegistónleikum

Ívar Helgason er gestur Antoníu Hevesi á hádegistónleikum

Hádegistónleikar í Hafnarborg hefja göngu sína að nýju þriðjudaginn 5. september en á þessum fyrstu tónleikum vetrarins verður Gaflarinn Ívar Helgason, barítón, gestur Antoníu Hevesi, píanóleikara og listræns stjórnanda tónleikaraðarinnar og er yfirskrift tónleikanna „Skin og skúrir“

Þau munu flytja aríur úr óperum og óperettum eftir Mozart, Lehár og Kálmán.

Hefur sungið á sviði frá ellefu ára aldri

Ívar Helgason hóf leikferil sinn ellefu ára gamall í titilhlutverki barnaóperunnar Litla sótarans eftir Benjamin Britten í uppfærslu Íslensku óperunnar og hefur Ívar verið viðloðandi sviðið allar götur síðan. Hann hóf söngnám við Tónlistarskólann í Hafnarfirði hjá Eiði Ágústi Gunnarssyni og við Söngskólann í Reykjavík naut hann svo handleiðslu Bergþórs Pálssonar og Guðmundar Jónssonar. Haustið 2001 hóf Ívar nám við söngleikjadeild Tónlistarháskólans í Vínarborg en sú menntun felur í sér að vera jafnvígur í söng, leiklist og dansi. Ívar útskrifaðist með láði árið 2003 og var þá þegar kominn með stöðu við Raimund Theater í Vínarborg við heimsfrumsýninguna á rokksöngleiknum Barbarella eftir Dave Stewart.

Næstu fjögur árin starfaði Ívar í Austurríki, Sviss, Þýskalandi og á Ítalíu þar sem hann tók þátt í fjölda söngleikja. Þar ber hæst hlutverk Jean Valjean og Enjolras í Vesalingunum í tveimur uppfærslum og Kaiser Franz Joseph í söngleiknum Elisabeth sem var fluttur sjö sinnum í viku yfir eitt og hálft ár í Apollo Theater í Stuttgart. Árið 2007 fluttist Ívar aftur heim og hóf störf við Þjóðleikhúsið uns listagyðjan togaði hann norður á land þar sem hann hefur fest rætur. Ívar gaf út jólaplötuna Jólaljós, þar sem má heyra útsetningar, textasmíð og lög eftir hann. Einnig hefur hann leikstýrt og dansstýrt ótal leikverkum og söngleikjum. Ívar lauk LRSM-söngkennaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og hefur kennt klassískan og ritmískan söng við Söngskólann, auk þess sem hann kenndi við Tónlistarskólann á Akureyri um margra ára skeið. Í dag er hann sjálfstætt starfandi listamaður, auk þess sem hann kennir steppdans í STEPS dansskólanum á Akureyri.

Antonía Hevesi hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa verið fastur liður í dagskrá safnsins síðan 2003. Þar hefur Antonía fengið til liðs með sér marga af fremstu söngvurum landsins en markmiðið með tónleikunum að veita gestum tækifæri til að njóta lifandi tónlistarflutnings í góðu tómi. Þá fara hádegistónleikarnir að jafnaði fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Aðgangur er ókeypis.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2