fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÁ döfinniKammerkórinn heldur tónleika í höfuðborginni

Kammerkórinn heldur tónleika í höfuðborginni

Kammerkór Hafnarfjarðar heldur tónleika á sunnudaginn í Háteigskirkju kl. 20

Kammerkór Hafnarfjarðar fer til höfuðborgarinnar sunnudaginn 19. maí og heldur vortónleika í Háteigskirkju kl. 20.

Á efnisskránni verða róleg og rómantísk verk úr ýmsum áttum, sem flest hafa verið samin eða útsett á síðustu 25 árum. Meðal annars verða sungin verk eftir Morten Lauridsen, Ola Gjeilo, Arvo Pärt, Pärt Uusberg, Ērik Ešenvalds og fleiri tónskáld.

Auk þess að láta tónlistarhæfileika sína í ljós fá kórfélagar að sýna hvað í þeim býr á tungumálasviðinu, því á tónleikunum munu hljóma samtals tíu tungumál, þar á meðal eistneska, xhosa, samíska og álfatunga.

Píanóleikari á tónleikunum er Ástríður Alda Sigurðardóttir. Stjórnandi kórsins er sem fyrr Helgi Bragason.

Miða má kaupa í forsölu hjá kórfélögum eða við innganginn fyrir tónleika.

Einnig er minnt á að hægt er að gerast styrktarfélagi kórsins og fá þannig tvo miða á næstu þrenna tónleika. Nánari upplýsingar eru á vef kórsins, kammerkor.is.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2