fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniKvöldganga í skógi á þriðjudag

Kvöldganga í skógi á þriðjudag

Þriðjudaginn 29. október kl. 19.30.

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar bjóða til skógargöngu á þriðjudaginn kl. 19.30.

Safnast verður saman við Gróðrarstöðina Þöll við Kaldárselsveg og þaðan verður gengið um skógarsvæði Skógræktarfélagsins.

Við upphaf göngunnar flytur Anna Borg stutt ávarp og að því loknu mun Steinar Björgvinsson skógfræðingur vera með leiðsögn um skóginn.

Gert er ráð fyrir að skógargangan taki um eina klukkustund og að henni lokinni verður boðið upp á heitt súkkulaði og meðlæti í húsakynnum Þallar.

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar, hvetja sem flesta til að taka þátt í kvöldgöngu um skóginn. Göngufólk er beðið að vera vel útbúið og taka með sér ljósfæri þar sem skuggsýnt er orðið á þessum tíma.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2