Á sunnudaginn kl. 14 segir Unnar Örn Auðarson, sýningarstjóri sýningar Hallgerðar Hallgrímsdóttur í Hafnarborg, „Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun – III. hluti“ frá listrænni sýn Hallgerðar og hugmyndafræði sýningarinnar.
Á sýningunni beinir Hallgerður sjónum sínum að ljósmyndatækninni sem miðli, þar sem hún skoðar bæði veruleikann í ljósmyndinni sem og veruleika ljósmyndarinnar sjálfrar.
Verkin eru unnin með ólíka möguleika miðilsins í huga sem felast ekki bara í því að fanga viðfangsefnið í fallegri birtu, heldur líka öllu sem gerist í myndavélinni, í myrkraherberginu og, nú nýlega, í stafrænni vinnslu. Þá getur myndin farið í óteljandi ólíkar áttir á hverju stigi í ferlinu, enda er engin ein rétt leið til að búa til ljósmynd.
Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2022