fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniLeiðsögn um sýninguna „Guðjón Samúelsson húsameistari“

Leiðsögn um sýninguna „Guðjón Samúelsson húsameistari“

Í Hafnarborg sunnudaginn 24. nóvember kl. 14

Á sunnudaginn kl. 14 verður boðið upp á leiðsögn um yfirlitssýningu Hafnarborgar á verkum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins 1920–1950. Pétur H. Ármansson, arkitekt og sýningarstjóri segir frá sýningunni.

Sýningin er sett upp í tilefni þess að öld er nú liðin frá því að Guðjón lauk háskólaprófi í byggingarlist, fyrstur Íslendinga, árið 1919 og var skipaður húsameistari ríkisins ári síðar. Á sýningunni er lögð áhersla á sýn Guðjóns sjálfs á eigin verk, stílþróun í byggingarlist hans og líklega áhrifavalda. Þar má sjá teikningar, ljósmyndir og líkön af byggingum Guðjóns, ásamt ýmsum tillögum sem ekki urðu að veruleika.

Guðjón var frumkvöðull á mörgum sviðum og átti veigamikinn þátt í nútímavæðingu íslensks samfélags. Opinber staða hans gaf honum einstakt tækifæri til áhrifa á byggingar- og skipulagsmál heillar þjóðar sem fáum arkitektum hefur hlotnast fyrr né síðar. Verk hans voru umdeild á sinni tíð og hafa fáir listamenn mátt sæta óvægnari gagnrýni. Það kom í hans hlut að gefa bæjum og byggingum hins nýfullvalda lands áþreifanlegt form og listrænt svipmót. Fyrir þjóð sem aldrei eignaðist gotneskar kirkjur eða hallir í klassískum stíl hafa verk Guðjóns sérstaka þýðingu.

Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og Þjóðskjalasafn Íslands og naut einnig styrks frá safnasjóði.

Aðgangur er ókeypis.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2