fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimÁ döfinniLíf í lundi - Fjölskyldudagur í Höfðaskógi

Líf í lundi – Fjölskyldudagur í Höfðaskógi

Fjölskyldudagurinn Líf í lundi verður haldinn á vegum skógræktarfélaganna á laugardaginn.

Skógræktarfélag Hafnarfjarðar verður með dagskrá í Höfðaskógi á skógræktarsvæðinu við Kaldársel á mogun, laugardaginn 24. júní kl. 14 til 17.

Þar verður hoppukastali, grill, „Pop up“ kaffihús og fríar kaffiveitingar frá Pallett Kaffikompaní og andlitsmálning verður í boði milli kl. 14 og 16.

Listahópur Vinnuskóla Hafnarfjarðar verður á staðnum og Larpið kíkir í heimsókn. Haffi Haff sér um tónlistina.

Ratleikur verður kynntur kl. 14.20 og vinningshafar dregnir út kl. 16.30.

Skógarganga

Kl. 14.30 verður skógarganga undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar en gangan tekur um eina og hálfa klukkustund.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2