Hve glöð er vor æska? er yfirskrift á málþingi fyrir alla foreldra í Hafnarfirði um líðan barna og forvarnir.
Það er foreldraráð Hafnarfjarðar sem stendur fyrir málþinginu sem verður haldið í Flensborgarskóla þriðjudaginn 19. nóvember, kl. 20-21:30.
Dagskrá
- „Leiðir til að efla forvarnir í Hafnarfirði“
– Geir Bjarnason, forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðarbæjar - „Þarf að kenna börnum og unglingum félags- og tilfinningafærni?“
– Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði - „Foreldrarölt skiptir máli“
– Helga Birna Gunnarsdóttir, fulltrúi í stjórn Heimilis og skóla - Reynsla erlendra foreldra
– Agnieszka Sokolowska og Dominika Krasko - „Hvernig líður börnunum okkar?“
– Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknir og greining - „Hinseginvænt umhverfi: hvað get ég gert?“
– Samtökin ’78