Á morgun, föstudag verður opnuð í Litla galleríinu við Strandgötu sýning á verkum Lindu Jóhannsdóttur og nefnist sýningin Tales.
Tales er sagan af janúar, séð með augum listamannsins Lindu Jóhannsdóttir en Linda málaði eina mynd á dag í janúar og úr varð efniviður sýningarinnar.
Sýningin er sölusýning sem samstendur af 31 vatnslitaverki unnin á pappír.
Sýningin stendur til sunnudags.