fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimÁ döfinniSkógarganga með ljósfærum í kvöld

Skógarganga með ljósfærum í kvöld

Kvöldganga Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins um skógarstíga Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, verður í dag, þriðjudag, kl. 19:30.

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar bjóða til skógargöngu í dag, þriðjudag,  kl. 19:30.

Safnast verður saman við Gróðrarstöðina Þöll við Kaldárselsveg og þaðan verður gengið um skógarsvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar.

Við upphaf göngunnar flytur Magnús Gunnarsson ávarp og að því loknu mun Steinar Björgvinsson skógfræðingur vera með leiðsögn um skóginn. Gert er ráð fyrir að skógargangan taki um eina klukkustund og að henni lokinni verður boðið upp á heitt súkkulaði og meðlæti í húsakynnum Þallar.

Göngufólk er beðið að vera vel útbúið og taka með sér ljósfæri þar sem skuggsýnt er orðið.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2