Í tilefni 40 ára útgáfuafmælis plötu Bubba Morthens, KONA, syngur Soffía Karls ásamt Léttsveit Péturs V lög af plötunni í heild sinni á tónleikum á Ægi 220.
Eftir hlé syngur hún svo nokkur vel valin lög Bubba frá 1981 til 2009, Eg , Utangarðsmenn ofl.
Léttsveitina skipa:
- Pétur Valgarð Pétursson: Gítar /Tónlistarstjóri
- Davíð Atli Jones: Bassi
- Eysteinn Eysteinsson: Trommur
- Kristinn Einarsson: Píanó
- Ástrós Hekla Sigurðardóttir: Þverflauta
Tónleikarnir verða laugardaginn 5. apríl og hefjast kl. 21.
Miðasala er á tix.is