Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópransöngkona verður gestur Antoníu Hevesi píanóleikara á hádegistónleikum í Hafnarborg þriðjudaginn 1. mars kl. 12.
Á tónleikunum, sem bera yfirskriftina Ástin og dauðinn, verða meðal annars fluttar aríur eftir ítölsku tónskáldin Puccini og Verdi.
Hanna Þóra Guðbrandsdóttir hóf söngnám við Tónlistarskólann á Akranesi árið 1996 og lagði því næst stund á söngnám við Söngskólann í Reykjavík, þaðan sem hún lauk stigsprófi vorið 2005. Þá hefur hún stundað söngnám í Kaupmannahöfn, Osló og Berlín í gegnum árin, auk þess að sækja meistaranámskeið og söngtíma hjá ýmsum virtum kennurum. Sumarið 2008 var Hanna Þóra valin til þess að taka þátt í söngkeppninni International Hans Gabor Belvedere Competiton, sem er ein stærsta keppni í heimi fyrir unga og upprennandi óperusöngvara. Hún hefur sungið sem einsöngvari með ýmsum kórum og við kirkjulegar athafnir. Eins hefur hún oft komið fram á vegum Íslensku óperunnar, jafnt með kór óperunnar og sem einsöngvari.
Hanna Þóra var einsöngvari í óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson sem Íslenska óperan setti upp 2014. Hún fór svo með hlutverk í óperunni Skáldinu og biskupsdóttirinni eftir Alexöndru Chernyshova og Guðrúnu Ásmundsdóttur, sem var frumflutt í Hallgrímskirkju í Saurbæ vorið 2014. Hanna Þóra hefur einnig farið með sópranhlutverkið í Oratorio de Noél eftir Camille Saint-Saens og flutt „Stabat Mater“ eftir Pergolesi ásamt kammerhópnum Reykjavík Barokk. Í júlí 2015 söng Hanna Þóra hlutverk Gerhilde í Die Walküre eftir Wagner í sumardagskrá Norsku óperunnar. Hanna Þóra hefur sungið í tónleikaröð Classical Concert Company Reykjavík frá upphafi. Hún hefur verið ötul í að setja upp hina ýmsu tónleika og lagt áherslu á að efla menningarlíf bæjarfélags síns, Akraness, og Vesturlands. Hanna Þóra var valin bæjarlistamaður Akraness árið 2011.
Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg, þar sem hún hefur fengið marga af fremstu söngvurum landsins til liðs við sig. Hádegistónleikar eru að venju á dagskrá Hafnarborgar fyrsta þriðjudag hvers mánaðar yfir vetrartímann.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Húsið verður opnað kl. 11:30 og tónleikarnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir.
Grímuskylda er á tónleikunum, þar sem ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Aðgangur er ókeypis.