Sumarmessa Hafnarfjarðarkirkju verður haldin í Garðakirkju, gömlu sóknarkirkju Hanfirðinga á sunnudag.
Messan verður í umsjón sr. Jónínu Ólafsdóttur og söguganga verður með fjölmiðlamanninum Jónatan Garðarssyni.
![Sr. Jónína Ólafsdóttir](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2021/07/PSX_20210728_191928-282x300.jpg)
Að sögn sr. Jónínu, sem tók við sem sóknarprestur í Hafnarkirkju í vor, hefst messan klukkan 11 og á sama tíma er sunnudagaskóli í vinnustofunni að Króki. Kristín Jóhannesdóttir organisti leiðir almennan safnaðarsöng.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2020/12/Jonatan-Gardarsson-skjaskot2.jpg)
Eftir messu verður boðið upp á sögugöngu um gamla kirkjugarðinn á Garðaholtinu en umsjón með göngunni hefur fjölmiðlamaðurinn og Hafnfirðingurinn Jónatan Garðarsson.
Sr. Jónína býður alla hjartanlega velkomna og minnir á að mkilvægt er að hver og einn virði sóttvarnarreglur en skráning verður við inngang og grímuskylda.