fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimÁ döfinniTónleikarnir Mozart við kertaljós í Hafnarfjarðarkirkju

Tónleikarnir Mozart við kertaljós í Hafnarfjarðarkirkju

Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika, „Mozart við kertaljós“ í kirkjum nú rétt fyrir jólin og verða tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 19. desember kl. 21.

Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu og eitt ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.

Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir og Guðrún Þórarinsdóttir víóluleikarar og Sigurður Haldórsson sellóleikari.

Á dagskránni eru glæsileg verk eftir Mozart en það eru Kvartett fyrir klarinettu og strengi í B Dúr kv. 378 og Kvintett fyrir strengi í B Dúr kv. 174.

Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.

Þá verða einni tónleikar í Kópavogskirkju miðvikudaginn 20. des, í Garðakirkju fimmtudaginn 21. des og í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 22. des. Frítt inn fyrir börn. Miðasala er við innganginn og á Tix.is

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2