fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimÁ döfinniUnnur Sara Eldjárn með ferna tónleika á föstudaginn

Unnur Sara Eldjárn með ferna tónleika á föstudaginn

Föstudaginn 2. september verður líf í fjör í Hafnarfirði en þá mun söngkonan

Unnur Sara Eldjárn ásamt Bisous bandinu mun á föstudaginn 2. september gleðja gesti og gangandi með stuttum tónleikum á hinum ýmsu stöðum í Hafnarfirði.

Tónleikarnir eru opnir öllum:

  • Kvennastyrkur, Strandgötu 33 kl. 11:30
  • Brikk, Norðurbakka 1 kl. 13:30
  • Bókasafn Hafnarfjarðar kl. 15:30
  • Sundhöll Hafnarfjarðar kl. 16:30

Aðgangur ókeypis og eru tónleikarnir eru um 20 mínútna langir.

Unnur Sara

Tónlist Unnar Söru má finna á tveimur breiðskífum sem hafa komið út á síðustu árum, „Unnur Sara syngur Gainsbourg” (2018) og „Bisous” (2020) en þar má heyra vinsæl lög frá sixties tímabilinu í Frakklandi frá flytjendum og höfundum á borð við Serge Gainsbourg, Françoise Hardy, France Gall og fleirum.

Þessi lög í flutningi Unnar eru komin með yfir 2.000.000 streymi á Spotify og eru einna vinsælust í Bandaríkjunum, Indónesíu og Filippseyjum.
Poppsmellurinn „Zou Bisou Bisou“ af hennar nýjustu plötu vakti jafnframt athygli á Íslandi í fyrra með langri setu á vinsældalista Rásar 2.

Unnur Sara er nú búsett í Suður – Frakklandi og vinnur í nýju sólóefni undir listamannsnafninu Sara Océan.

Bisous bandið skipa að þessu sinni:

  • Daníel Helgason, gítar
  • Sigmar Þór Matthíasson, kontrabassi
  • Þorvaldur Kári Ingveldarson, trommur

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2