fbpx
Sunnudagur, nóvember 17, 2024
target="_blank"
HeimÁ döfinniVetrarfrí 14. og 15. október og margt í boði í bænum

Vetrarfrí 14. og 15. október og margt í boði í bænum

Vetrarfrí verður í grunnskólum Hafnarfjarðar fimmtudaginn 14. október og  föstudaginn 15. október.

Af því tilefni er m.a. frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar.

Hafnarfjarðarbær, undir merkjum heilsubæjar, býður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt bingói í vetrarfríinu en þar má finna hugmyndir að fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

Litli ratleikur Hafnarfjarðar 2021 leiðir þátttakendur á 15 áhugaverða staði sem m.a. vekja athygli á sögu bæjarins.

Grunnskólabörn eru boðin velkomin í Bókasafn Hafnarfjarðar í vetrarfríinu, en þar verður m.a. afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins, Nærbuxnaverksmiðjan, til sýnis í fjölnotasal. Á Byggðasafni Hafnarfjarðar verður hægt að taka þátt í fróðlegum ratleik fyrir fjölskylduna sem leiðir gesti um safnið og Hafnarborg býður grunnskólabörnum að koma og taka þátt og skapandi listasmiðjum.

Miðvikudagur 13. október

  • Stuttmyndir og bíó í Bæjarbíói – frítt fyrir alla
    Svarti skafrenningurinn kl. 17
    Brellugerð – fyrirlestur með Rob Tasker kl. 18
    Astrópía kl. 19:30
  • Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal.

Fimmtudagur 14. október

  • Frítt verður í sund kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
  • Ratleikur fyrir börnin og barnaleiðsögn um Byggðasafn Hafnarfjarðar kl. 13.  Opið 11-15
  • Sýningin Samfélag skynjandi vera í Hafnarborg. Opið 12-17
  • Listasmiðja í umsjá Þórdísar Jóhannesdóttur frá kl. 13-15 í Hafnarborg. Unnar verða klippimyndir og sprettibækur (pop-up bækur) þar sem hús, híbýli og verur öðlast líf á blaðsíðum bóka
  • D&D fyrir byrjendur á Bókasafni Hafnarfjarðar – (uppbókað)
  • Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal

Föstudagur 15. október

  • Frítt í sund kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
  • Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Opið 11-15
  • Listasmiðja í umsjá Karólínu Einarsdóttur frá kl. 13-15 í Hafnarborg. Hugtakið „skynjandi verur“ er skoðað út frá sjónarhóli barna. Þátttakendur fá tækifæri til að búa til litlar verur úr leir sem skynja heiminn ólíkt okkur mannfólkinu
  • Fjölskyldustund á barnadeild Bókasafns Hafnarfjarðar – sögustund kl. 13
  • Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal

Laugardagur 16. október

  • Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Opið 11-17
  • Sýningin Samfélag skynjandi vera í Hafnarborg. Opið 12-17
  • Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal

Sunnudagur 17. október

  • Byggðasafn Hafnarfjarðar opið 11-17. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.
  • Sýningin Samfélag skynjandi vera í Hafnarborg. Opið kl. 12-17.

Þá hefur stýrihópur fyrir Heilsubærinn Hafnarfjörður tekið saman stafróf af hugmyndum að fjölmörgu spennandi og skemmtilegu sem hægt er að taka sér fyrir hendur heimavið eða í næsta nágrenni. Þar má nálgast fullt af hugmyndum að einhverju nýju og öðruvísi til að gera einn eða með fjölskyldunni.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2