Á sunnudaginn er æskulýðsdagur kirkjunnar og eftir fjölskylduhátíð í Víðistaðakirkju munu fermingarbörn standa fyrir vöfflusölu í safnaðarheimilinu.
Þá verður kerta- og leirmunasala barnastarfsins en allur ágóði rennur til byggingar steinhúsa fyrir munaðarlaus börn í Uganda.
Fólk er hvatt til að styrkja gott málefni en enginn posi er á staðnum svo vissara er að taka skotsilfur með.