fbpx
Sunnudagur, júlí 14, 2024
HeimFrá ritstjóraMótmæli, kynningar og skipulag

Mótmæli, kynningar og skipulag

Leiðari Fjarðarfrétta 4. júlí 2024

Það hefur verið heilmikið að rífast yfir þessa dagana. Metnaðarfull áform Carbfix um að dæla niður koldíoxíði niður í hraunið skammt frá byggð í Hafnarfirði er þar líklega efst á blaði en einnig eru skiptar skoðanir um áform um virkjanir í Krýsuvík þó það fái ekki eins mikla umræðu, líklega vegna fjarlægðar.

Svo má ekki gleyma hörðum mótmælum íbúa í Áslandi 3 sem vilja ekki litla grenndarstöð í hverfið sitt. Reyndar hefur íbúum í hverfinu orðið nokkuð ágengt í mótmælum, náðu að hindra að Ásvallabrautin yrði lögð skv. skipulagi, en þá hefðu deilurnar um grenndarstöðina reyndar aldrei orðið til, og svo náðu þeir að loka á íbúa í Skógarási með mótmælum, en Skógarásinn átti reyndar alltaf að tilheyra Áslandi 3.

En af hverju þessar deilur? Voru málefnin ekki kynnt og kallað eftir athugasemdum? Jú, reyndar en samt kemur fólk af fjöllum og sumir höfðu aldrei heyrt af Coda Terminal verkefninu fyrr en núna síðustu daga þrátt fyrir gríðarlega umræðu og kynningu.
Oft má kenna lélegri kynningu um, t.d. þegar fundir eru aðeins auglýstir í Mogganum og á Facebook tveimur tímum fyrir fund. Oft er í raun búið að ákveða hvað á að gera þegar mál eru kynnt og þá er alveg sama hvað íbúar segja, oftast er ekki tekið mark á athugasemdum þeirra.

En það má líka kenna áhugaleysi íbúa um þegar málefni er í umræðu. Það er eins og fólk vakni fyrst þegar farið er að safna undirskriftum til að mótmæla og enginn vill neitt í sínu hverfi sem truflað geti tilveruna.

En einhvers staðar er sannleikurinn þarna á milli og ábyrgðin er sveitarfélagsins að gera aðgengi að upplýsingum gott og þannig að almenningur þurfi ekki að lúslesa langar skýrslur til að fá yfirsýn yfir áætlanir. Njótum sumarsins!

Guðni Gíslason ritstjóri.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2