Jóhannes Reykdal fæddist 18. janúar 1874 að Vallakoti Reykjadal í Þingeyjarsýslu. Hann var yngstur 15 systkina og lærði trésmíði hjá Snorra Jónssyni á Akureyri. Eftir það fór hann til frekara náms til Kaupmannahafnar.
Árið 1902 flytur Jóhannes til Hafnarfjarðar og er fenginn til þess að reisa Barnaskóla Hafnarfjarðar við Suðurgötu. 1903 reisir hann trésmíðaverksmiðju með vélakosti, sem knúinn var með vatnsafli Lækjarins. Fyrsta verksmiðja sinnar tegundar á Íslandi. Ári síðar í desember 1904 stofnaði Jóhannes fyrstu almenningsrafveitu á Íslandi, fyrir aðeins 120 árum síðan. Hann virkjaði Hamarskotslæk í Hafnarfirði og var fyrstur Íslendinga til að nota vatnsafl til raforkuframleiðslu á Íslandi. Jóhannes sá til þess að í Hafnarfirði var kveikt rafljós í fyrstu kirkju, samkomuhúsi, barnaskóla, verksmiðju, landsins og heimahúsum, ásamt því sem fjórir ljósastaurar fengu raflýsingu. Erlendis er slíkum stofnunum vel við haldið og við stofnanirnar reist listaverk til að minnast slíkrar sérstöðu.
Hátíð Hamarskotslækjar
Hátíð Hamarskotslækjar minnir á mikilvægi lækjarins og ljóssins.
Það var árið 2010 sem Steinunn Guðnadóttir ákvað ásamt Halldóri Árna Sveinssyni og öðrum góðum stuðningsaðilum að halda á lofti þessari merkilegu menningarsögu okkar Hafnfirðinga. Hátíðin var haldin samfellt í samstarfi við jólaþorpið fram að covid tíma.
Staðið var að 10 km Kaldárhlaupi, þar sem hlaupið er eftir vatnaleið Hamarskotslækjar. Aðrar uppákomur voru, ljósaganga, fyrirlestrar, kvikmyndasýningar, gerð minjagripa, sögusýning í samstarfi við Byggðasafnið, kórsöngur, ratleikur og auglýsingar í samstarfi við Fjarðarfréttir, og samstarf var við Hafnarfjarðarbæ og Iðnskólann/Tækniskólann. Í listnámsbraut skólans hönnuðu nemar eina önn drykkjarvatnspóst og vinningshafar fengu peningaverðlaun og nemar í rafdeild hönnuðu skrautlýsingu í Hellisgerði.
Samstarfs- og styrktaraðilar hafa verið margir þ.á.m. Hafnarfjarðarbær, Fjarðarfréttir, Hópbílar, Hlaup.is, Annríki, Matarbúðin, Gullsmiðjan, Strendingur og VSB. Þá hafa fyrirtæki meðfram Hamarskotslæk gefið verðlaun í Kaldárhlaup ásamt öðrum fyrirtækjum og veitingastöðum í bænum.
Hátíðarhöld í ár
Í ár verður haldið uppá 150 ár frá því að Jóhannes J. Reykdal fæddist, 120 ár frá fyrstu almenningsrafveitu landsins í Hafnarfirði og 10 ára afmæli Hátíðar Hamarskotslækjar.
Hátíðin fer fram í desember 2024, Kaldárhlaup verður haldið og hlaup fyrir fleiri aldurshópa. Þá stefna aðstandendur Hátíðar Hamarskotslækjar að útgáfu bókar, kvikmyndar, o.fl.
Á afmælisdegi Jóhannesar J. Reykdal þann 18. janúar sl. fagnaði fjölskylda Jóhannesar þessum merku tímamótum með því að hlusta á erindi séra Einars og söng og undirspil í Fríkirkju Hafnarfjarðar, en Jóhannes reisti kirkjuna 1913.
Í safnaðarheimilinu var síðan kaffiboð þar sem rifjaðar voru upp sögur af frumkvöðlinum Jóhannesi J. Reykdal.