fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttir21 með staðfest smit – Mikilvægt að þeir sem fara í sýnatöku...

21 með staðfest smit – Mikilvægt að þeir sem fara í sýnatöku haldi sig heima þar til neikvæð niðurstaða fæst

Þekktu einkenni COVID-19 veikinnar

Í morgun funduðu almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis vegna þeirra smita sem greinst hafa á Íslandi frá 8. júlí. Í dag eru í heildina 21 með staðfest smit veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum. 173 eru í sóttkví. Um ellefu aðskilin mál er að ræða og í tveimur þeirra hefur uppruni smits ekki fengist staðfestur. Íslensk erfðagreining hefur raðgreint sýni til þess að finna uppruna smitanna.

Þeir einstaklingar sem eru með staðfest smit hafa sýnt einkenni veirunnar en enginn er alvarlega veikur og enginn er á sjúkrahúsi.

Áríðandi er að halda því til haga að þeir sem fara í sýnatöku haldi sig heima þar til neikvæð niðurstaða hefur borist.

Með aðgerðum almannavarna, embættis landlæknis og stjórnvalda hefur hingað til náðst góður árangur í að hefta útbreiðslu Covid-19 hér á landi. Að fólk hugi vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum. Þar er handþvottur og sótthreinsun lykilatriði. Rétt er að brýna fyrir almenningi að gera slíkt áfram og að þjónustufyrirtæki og stofnanir sjái til þess að sóttvarnir séu til staðar.

Helstu einkenni Covid-19 sýkingar minna á venjulega flensu;

    • Hiti
    • Hósti
    • Bein- og vöðvaverkir
    • Þreyta
    • Meltingareinkenni (kviðverkir, ógleði/uppköst, niðurgangur) eru ekki mjög áberandi með COVID-19 en eru þó þekkt.
    • Breytingu, eða tapi á bragð- og lyktarskyni er lýst hjá 20–30% sjúklinga.

Sýni einstaklingur einkenni eða vakni grunur um smit í nærumhverfi skal hinn sami halda sig heima, hafa samband við sína heilsugæslu eða í gegnum netspjall á heilsuvera.is og óska eftir sýnatöku. Einnig er hægt að hafa samband við Læknavaktina í síma 1700.

Komi upp smit er smitrakning lykilatriði til þess að kanna mögulega útbreiðslu. Því minna almannavarnir og landlæknir á mikilvægi þess að fólk sæki Rakning C-19 appið í síma sína. Slíkt getur auðveldað smitrakningu.

Mikilvægar upplýsingar um Covid-19 má finna á vefsíðunni www.covid.is

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2