Framkvæmdir munu hefjast við stækkun verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar að Strandgötu á þessu ári. Samningar um fjármögnun er tryggður að sögn Guðmundar Bjarna Harðarsonar, framkvæmdastjóra Fjarðar.
Að hans sögn er vinna við hönnun í fullum gangi og hefur Sigurður Guðmundsson, verkfræðingur hjá Strendingi verið ráðinn verkefnastjóri. Er áætlað að framkvæmdum muni ljúka á tveimur árum.
Mun þetta breyta ásýndinni við Strandgötuna mikið enda hefur gatið, sem myndaðist þegar Hafnarfjarðarbíó og Kaupfélagshúsið voru rifin, verið lengi og nánast orðið hluti af miðbæjarmyndinni. Verslunum mun fjölga, Bókasafn Hafnarfjarðar/margmiðlunarsetur, flytur í húsið og á efri hæðunum verður blanda af íbúðum og hótelbúðum. Nýbyggingin er alls um 8.000 m² og í húsinu verður stór matvöruverslun og verslunarrýmum mun fjölga á jarðhæð. Þá verður áhugaverður almenningsgarður á þaki 1. hæðar.
Jólaverslunin gekk gríðarlega vel
Að sögn Guðmundar Bjarna gekk jólaverslunin mjög vel í Firði. Mjög líflegt var í verslunarmiðstöðinni og stöðugur straumur fólks í miðbænum þrátt fyrir risjótt veður á köflum. Segist hann líta björtum augum á framtíðina og segir að miðbærinn eigi eftir að eflast með stækkun Fjarðar og tengingu hans við Strandgötuna.