fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttir36% ökumanna óku á ólöglegum hraða við Setbergsskóla

36% ökumanna óku á ólöglegum hraða við Setbergsskóla

Sá sem ók hraðast ók á 70% yfir hámarkshraða

Brot 30 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi framan við Setbergsskóla sl. þriðjudag.

Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt.

Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2