Aldrei hafa verið færri iðkendur hjá Taekwondodeild Bjarkar en sl. vetur og hefur stjórn deildarinnar brugðist við og stefnir á öflugt starf á næsta starfsári. Taekwondodeild Bjarkar ákvað að framlengja ekki samning deildarinnar við Cesar Rodríguez Luna og hefur hann látið af störfum.
Samið hefur verið við Björn Þorleifsson sem verður yfirþjálfari deildarinnar og Sigursteinn Snorrason verður tæknilegur ráðunautur. Björn er einn besti taekwondo íþróttamaður landsins en Sigursteinn er einnig vel þekktur innan Taekwondo geirans, menntaður íþróttakennari með 25 ára reynslu af kennslu og er með 6. dan í Taekwondo og svart belti í Hapkido.
Sjá nánar á heimasíðu Bjarkar