fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttir450 milljóna kr. stuðningur ríkisins við íþróttahreyfinguna

450 milljóna kr. stuðningur ríkisins við íþróttahreyfinguna

50 milljónum kr. verður úthlutað til æskulýðsfélaga á grundvelli umsókna

Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands verður falið að úthluta 450 milljóna kr. stuðningi ríkisins til íþróttahreyfingarinnar til þess að mæta áhrifum COVID-19. Samningur þess efnis var undirritaður í gær. Þá verður 50 milljónum kr. úthlutað til æskulýðsfélaga á grundvelli umsókna þeirra. Stuðningur þessi byggir á þingsályktun um fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins, sem samþykkt var á Alþingi þann 30. mars sl.

„Markmið stuðnings stjórnvalda er að draga úr afleiðingum COVID-19 á íþróttalíf í landinu og tryggja eins og kostur er að fjölbreytt íþróttaiðkun geti farið fram – það er okkur öllum mikilvægt, ekki síst út frá lýðheilsusjónarmiðum og forvarnargildi íþrótta. Viðmið um úthlutun þessarar styrkja mun taka mið af stefnumótun mennta- og menningarmálaráðuneytis í íþróttamálum og byggja á sjónarmiðum jafnræðis, kynjajafnréttis og gagnsæis. Þá verður sérstaklega hugað að brottfalli úr íþróttum og verkefnum sem hvetja viðkvæma hópa til íþróttaiðkunar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Úthlutun mun bæði snúa að almennum og sértækum aðgerðum. Almennar aðgerðir munu taka mið af reiknireglu og koma til framkvæmda strax. Sértækar aðgerðir felast í að fjármagni verði úthlutað vegna sérstakra viðburða, móta og keppnishalds sem ekki getur orðið af vegna COVID-19. Auglýst verður á vef ÍSÍ eftir umsóknum vegna þessa. ÍSÍ mun síðan fylgjast náið með starfsemi íþróttafélaga og upplýsa ráðuneytið með reglubundnum hætti um áhrif þeirra aðgerða sem ráðist verður í.

Styrkir til æskulýðsfélags kynntir innan tíðar

Auglýsing um styrki til æskulýðsfélaga verður birt á vef ráðuneytisins innan tíðar. Þá verður til umfjöllunar á Alþingi tillaga um 600 milljóna kr. aukafjárveitingu til sveitarfélaga vegna tímabundins stuðnings við fjölskyldur í erfiðri stöðu, svo tryggja megi jöfn tækifæri barna og ungmenna til íþrótta- og tómstundastarfs í sumar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2