fbpx
Föstudagur, desember 20, 2024
target="_blank"
HeimFréttirAtvinnulíf550 starfsmenn í nýjum höfuðstöðvum Icelandair í Hafnarfirði

550 starfsmenn í nýjum höfuðstöðvum Icelandair í Hafnarfirði

Icelandair hefur nú sameinað starfsemi sína á höfuðborgarsvæðinu, utan flugvallarstarfsemi, í nýju Icelandair húsi á Flugvöllum í Hafnarfirði.

Húsnæðið er viðbygging við þjálfunarsetur Icelandair sem reist var árið 2014 og mun bókleg og verkleg þjálfun áhafna, skrifstofustarfsemi, þjónustuver, þjónustuskrifstofa og stjórnstöð sameinast undir einu þaki, auk þess sem flugáhafnir koma saman í húsinu áður en haldið er til Keflavíkurflugvallar.

Um 550 munu hafa starfsstöð í húsinu.

Nútímalegt, hagkvæmt og sveigjanlegt húsnæði

Húsið er hannað af  Nordic Office of Architecture og við hönnun var sveigjanleiki, hagkvæmni og sjálfbærni haft að leiðarljósi, bæði hvað varðar byggingu og rekstur til framtíðar. Byggingin verður BREEAM vottuð sem staðfestir að húsið hafi verið byggt með það í huga að áhersla sé á umhverfis- og öryggisþætti, góða orkunýtingu sem og heilsu og vellíðan starfsfólks. Húsið er hannað og byggt á þann hátt að félagið geti vaxið innan þess og var lögð var sérstök áhersla á fjölbreytt vinnurými og teymisvinnu. Við flutninginn mun skrifstofuhúsnæði félagsins minnka um 1.300 fermetra með tilheyrandi hagræði í rekstri.

Það hefur vakið athygli þeirra sem hafa átt leið fram hjá nýja húsnæði Icelandair hversu mikið hefur verið lagt í lóðafrágang, sem fegrar umhverfið og er öðrum til fyrirmyndar.

Metnaður að þetta verði eftirsóttasti og besti vinnustaður landsins

„Í nýja Icelandair húsinu á Flugvöllum höfum við sameinað stóran hluta starfsfólks okkar á einum stað. Þar höfum við skapað fjölbreytta og framúrskarandi vinnuaðstöðu í takt við metnað okkar að vera eftirsóttasti og besti vinnustaður landsins. Það er bæði ánægjulegt og hagkvæmt að búa nú yfir miðstöð þar sem áhafnir á leið í flug eða þjálfun og annað starfsfólk kemur saman. Svo er að sjálfsögðu einnig mikill ávinningur í að vera nær Keflavíkurflugvelli þar sem stærstur hluti af okkar starfsemi fer fram,“ segir Elísabet Helgadóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2