Í einfaldri könnun sem gerð var hér á síðunni kemur fram að 63% lesenda vilja að sveitarfélagið í Hafnafirði heiti Hafnarfjarðarbær en ekki Hafnarfjarðarkaupstaður eins og sveitarfélagið heitir lögformlega.
Í umfjöllun um málið hér í Fjarðarfréttum kom fram að nokkur ruglingur er með notkun á nafni sveitarfélagsins, ekki síst á vef bæjarins og jafnvel í formlegum skjölum.
24% lesenda vildu að sveitarfélagið haldi nafni sínu, Hafnarfjarðarkaupstaður, 10% vildu að það héti Hafnarfjörður og tvær skondnar tillögur komu um nýtt nafn, Sveitarfélag Sívertsens og Konungsgarður.