fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttir70 cm þykk botnplata í viðbyggingu Fjarðar

70 cm þykk botnplata í viðbyggingu Fjarðar

Það þurfti 120 steypubíla til að koma með steypu í 3/4 af botnplötu nýbyggingar við Fjörð í miðbæ Hafnarfjarðar að sögn Guðmundar Bjarna Harðarsonar, framkvæmdastjóra 220 Fjarðar, sem byggir húsið.

Starfsmenn gengu rösklega til verks við að slétta steypuna strax eftir að henni var dælt með dælubíl úr steypubílunum.

Í plötuna fóru 120 tonn af steypustyrktarstáli en platan er 70 cm þykk sem talið er nauðsynlegt vegna þess að sjávarfalla gætir þarna.

Stórir dælubílar voru notaðir í verkið.

Steypt var sl. mánudag og gekk vinna mjög vel og var aðeins á undan áætlun en GG verk bauð lægst í verkið.

Járnið sem stendur upp úr plötunni tengist við járn í burðarveggjunum.

Botnplatan er undir bílakjallaranum. Þegar lokið er við að steypa botnplötuna tekur við uppsteypa á burðarveggjum en á þeim hvílir svo gólf verslunarhæðarinnar sem mun tengja Fjörð við Strandgötuna.

Yfirlit yfir vinnusvæðið og sýnir hversu stór viðbyggingin er.
Dælubílar voru á tveimur stöðum

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2