fbpx
Mánudagur, nóvember 25, 2024
target="_blank"
HeimFréttirAnton Sveinn er sundmaður ársins

Anton Sveinn er sundmaður ársins

Hvergerðingurinn Snæfríður Sól Jórunnardóttir er sundkona ársins

Sundsamband Íslands hefur útnefnt Snæfríði Sól Jórunnardóttur sem sundkonu ársins og Hafnfirðinginn Anton Svein McKee sem sundmann ársins.

Snæfríður syndir fyrir Álaborg í Danmörku og Anton Sveinn er úr Sundfélagi Hafnarfjarðar.

Sundmaður ársins 2022 er Anton Sveinn McKee

Anton Sveinn McKee

Anton Sveinn McKee varð 29 ára í gær og er sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar. Hann er nú valinn sundmaður ársins, fimmta árið í röð.

Anton Sveinn synti á heimsmeistaramótinu í 50 m laug í Búdapest í júní þar sem hann komst í 8 manna úrslit í 200 m bringusundi og varð í 6. sæti á nýju Íslandsmeti. Það mátti litlu muna að hann myndi tryggja sér verðlaun í þeirri grein. Á sama móti varð hann í 17. sæti í 100 m bringusundi.

Á Evrópumeistaramótinu í Róm synti hann einnig inn í úrslit og varð í sjötta sæti.
Nú í desember synti Anton á heimsmeistaramótinu í 25 m laug og varð í 10. sæti í 200 m bringusundi.

Á spænska meistaramótinu í apríl sigraði hann 100 m og 200 m bringusundi þegar hann synti á nýju Íslandsmeti í 200 m bringusundi. Á þessu áru hefur hann bætt eigið met í 200 m bringusundi í þrígang.

Anton Sveinn er í 12. sæti á heimslistanum í 20 0m bringusundi og í 11. sæti á lista yfir hröðustu sundmenn í Evrópu í sömu grein.

Anton býr í Vestur-Virginíuríki þar sem hann stundar æfingar, en eins og flestir vita var hann eini íslenski íþróttamaðurinn sem náði A- lágmarki fyrir ÓL í Tokyo 2020.

Anton Sveinn er góð fyrirmynd jafnt sem sundmaður og íþróttamaður utan laugar. Hann hefur sýnt góða ástundun og mikla þrautseigju.

Ólympíuleikarnir í Tókýó voru þeir þriðju sem Anton hefur tekið þátt í og nú undirbýr hann sig fyrir fjórðu Ólympíuleikana í París 2024 og skipar sér þar með í sérflokk meðal íslenskra íþróttamanna.

Anton hefur verið eljusamur/duglegur við að miðla reynslu sinni og þekkingu til ungra og upprennandi sundmanna á undanförnum misserum.

Sundkona ársins 2022 er Snæfríður Sól Jórunnardóttir

Snæfríður Sól Jórunnardóttir

Snæfríður Sól er 22 ára gömul og syndir fyrir Álaborg í Danmörku. Hún náði bestum árangri íslenskra kvenna í sundi á árinu 2022, samkvæmt útgefnum viðmiðum SSÍ.

Snæfríður Sól varð í 15. sæti í 200m skriðsundi á EM50 í Róm í ágúst 2022. Í nóvember bætti hún 12 ára gamalt Íslandsmet í 100m skriðsundi og í desember tvíbætti hún það met á HM25 í Melbourne í Ástralíu. Þar komst hún einnig í 16 manna úrslit og varð í 15. sæti af 64 keppendum. Hún bætti um betur þegar hún hafnaði í ellefta sæti á sama móti þegar hún synti á nýju Íslandsmeti í 200m skriðsundi. Snæfríður er búin að bæta það met í tvígang á síðustu tveimur mánuðum. Snæfríður Sól setti því samtals 5 Íslandsmet á árinu.
Snæfríður Sól varð einnig bikarmeistari með liði sínu Álaborg í nóvember.
Snæfríður Sól er í sjötta sæti á lista yfir hröðustu sundkonur í Evrópu þessa stundina í 200 m skriðsundi og í 28. sæti á heimslistanum í sömu grein.
Hún keppti á Ólympíuleikum ungmenna sem haldnir voru í Buenos Aires 2018. Snæfríður Sól keppti á sínum fyrstu Ólympíuleikum í Tokyo 2021.

Hún synti á sínum yngri árum í Hveragerði fyrir Sundfélagið Hamar, en flutti til Árósa þegar hún var 11 ára gömul.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2