Árdís Ármannsdóttir, samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar, hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Hafnarfjarðarbæjar.
Þetta var staðfest á fundi bæjarsjórnar sl. miðvikudag.
Alls sóttu 47 um starfið en umsóknarfrestur rann út 13. febrúar sl. og var Árdís ein umsækjenda.
Árdís er með Msc gráðu í stjórnun og stefnumótun frá viðskiptaháskólanum í Árósum og Bsc gráðu í alþjóða markaðsfræði.
Árdís hefur starfað sem samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar síðan 1. desember 2015 og hefur undanfarið sinnt starfi sviðsstjóra í forföllum.
Sjá frétt um umsækjendur hér.