fbpx
Fimmtudagur, desember 26, 2024
target="_blank"
HeimFréttirÁrni Rúnar skipar 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi

Árni Rúnar skipar 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember 2024 var samþykktur á fundi kjördæmisráðs í Hafnarfirði í hádeginu.

Alma Möller, landlæknir, leiðir listann í Kraganum. Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi er í öðru sæti. Í þriðja sæti er Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður, og fjórða sæti skipar Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og grunnskólakennari.

Heiðurssætið skipar Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.

„Ég þakka félögum mínum í flokknum fyrir traustið sem mér er sýnt og einnig hlýjar móttökur hér í kjördæminu. Það var virkilega góður andi á fundinum í Hafnarfirði í dag og kosningabaráttan hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi er svo sannarlega hafin. Við förum vel skipulögð og sameinuð inn í kosningabaráttuna, auk þess sem við erum vel nestuð í gegnum útspil flokksins sem unnin voru í gegnum málefnavinnu um land allt, m.a. í samvinnu við almenning og fagfólk.

Það er ákall um breytingar í íslenskum stjórnmálum, Samfylkingin er hið pólitíska afl sem getur brugðist við því ákalli og það hyggjumst við gera. Það er þörf á úrbótum hvert sem á er litið og hvort sem um ræðir efnahagsmál, húsnæðismál eða samgöngumál. Heilbrigðismálin eru svo, eins og gefur að skilja, mitt hjartans mál og þar er einnig svigrúm til að gera betur.

Ég hlakka til kosningabaráttunnar sem er fram undan, það er mikill meðbyr með Samfylkingunni og nú gildir að hamra járnið meðan það er heitt. Það gerum við með því að snúa bökum saman og halda áfram að sýna þjóðinni að við séum í stakk búin til þess að leiða næstu ríkisstjórn undir forystu okkar frábæra formanns, Kristrúnar Frostadóttur.“ segir Alma Möller, oddviti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi:

  1. Alma Möller, landlæknir
  2. Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi
  3. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður
  4. Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og kennari
  5. Jóna Þórey Pétursdóttir, lögmaður
  6. Hildur Rós Guðbjargardóttir, umsjónarkennari
  7. Ómar Ingþórsson, landslagsarkitekt
  8. Margrét Hildur Guðmundsdóttir, deildarstjóri
  9. Mirabela Aurelia Blaga, lögfræðingur
  10. Baldur Ólafur Svarvarsson, arkitekt
  11. Friðmey Jónsdóttir, sérfræðingur í æskulýðsmálum
  12. Jón Gunnlaugur Viggósson, íþróttastjóri hjá HSÍ
  13. Auður Brynjólfsdóttir, stjórnmálafræðingur
  14. Sævar Már Gústavsson, sálfræðingur
  15. Maria Eugenia Aleman Henriquez, ráðgjafi
  16. Bjarni Torfi Álfþórsson, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
  17. Kolbrún Lára Kjartnasdóttir, leikskólakennari
  18. Tryggvi Felixson, leiðsögumaður og ráðgjafi
  19. Hildur María Friðriksdóttir, sérfræðingur í jarðskorpurannsóknum
  20. Sigurður Óli Karlsson, háskólanemi
  21. Sólveig Skaftadóttir, verkefnastjóri
  22. Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, skrifstofustjóri Þroskahjálpar
  23. Elín Anna Baldursdóttir, sálfræðingur
  24. Kári Þrastarson, hugbúnarasérfræðingur
  25. Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir, vörustjóri
  26. Ólafur Guðmundsson, fyrr. rannsóknarlögreglumaður
  27. Rannveig Guðmundsdóttir, fyrr, alþingismaður
  28. Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

Gleðileg jól

Jólahugvekja

Vísindi notuð í varnarskyni

H2