fbpx
Mánudagur, nóvember 25, 2024
target="_blank"
HeimFréttirÁslandsskóli keppir í beinni útsendingu í Skólahreysti

Áslandsskóli keppir í beinni útsendingu í Skólahreysti

Áslandsskóli varð í þriðja sæti í fimmta riðli í Skólahreysti með 40 stig og mun keppa í úrslitakeppninni í beinni útsendingu á RÚV 29. maí nk. kl. 20.

Sigraði lið skólans í einni grein, upphýfingum, þar sem náðust 44 upphífingar. Skólinn varð í öðru sæti í armbeygjum með 35 armbeygjur, 4. sæti í hreystigreip með 3:38 mín, 5. sæti í hraðaþraut á 2:40 mín og í 5. sæti í dýfum, þar sem náðust 30 dýfur.

Laugalækjarskóli og Grunnskólinn á Hellu urðu í 1. og 2. sæti í riðlinum.

Þessi stúlka úr Áslandsskóla náði að 35 armbeygjum.

Venjulega eru 10 undanriðlar og svæðisskiptir en vegna Covid19 voru þeir aðeins 7 og ekki svæðisskiptir. Tólf skólar komast í úrslit, öll sigurliðin 7 og síðan þeir fimm skólar sem náðu bestum árangri þeirra sem eftir voru. Þar á meðal var Áslandsskóli.

Hann náði 44 upphífingum og sigraði í riðlinum.

Víðistaðaskóli var einnig nálægt því að komast áfram úr sjötta riðli, fékk 48 stig og sigraði í einni grein, í upphífingum þar sem náðust 52 upphýfingar.

Keppnisgreinar

  • Upphífingum (strákar)
  • Armbeygjum (stelpur)
  • Dýfum (strákar)
  • Hreystigreip (stelpur)
  • Hraðaþraut  (strákar og stelpur)

Keppendur, sem eru úr 9. og 10. bekk grunnskólana, skipta á milli sín keppnisgreinum. Annar strákurinn spreytir sig á upphífingum og dýfum meðan hinn keppir í hraðaþrautinni. Hjá stelpunum er hið sama uppi á teningnum:  Önnur stúlkan keppir í armbeygjum og hreystigreip, en hin tekur þátt í hraðaþrautinni. Tveir skólar keppa samtímis í hverri þraut fyrir utan hreystigreip, en þar takast á fimm til átta skólar í einu.

Tólf skólar keppa svo í úrslitum Skólahreysti.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2