fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirÁtakið Hjólað í vinnuna hófst í dag og stendur til 25. maí

Átakið Hjólað í vinnuna hófst í dag og stendur til 25. maí

Átakið Hjólað í vinnuna var sett með hátíðlegum hætti í morgun.

Ávörp fluttu Sigríður Jónsdóttir, 1. varaforseti ÍSÍ, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu og sveitarstjórnarráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur og Einar Sigurjónsson, þríþrautarkappi. Öll voru þau sammála um mikilvægi verkefnisins til að hvetja landsmenn til að velja umhverfisvænan, hagkvæman og heilsusamlegan ferðamáta.

Hjólreiðaborg á heimsmælikvarða

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík benti á að enginn ferðamáti hafi vaxið jafn hratt á undanförnum árum og samgönguhjólreiðar. Hann taldi að þær ættu eftir að vaxa ennfrekar með tilkomu rafhjóla. Eitt af markmiðum Reykjavíkurborgar er að borgin verði hjólreiðaborg á heimsmælikvarða.

Allir með bjöllu

Einar Sigurjónsson, þríþrautarkappi kom inn á mikilvægi þess að vera með bjöllu á hjólinu, sýna tillitssemi í umferðinni, vera vingjarnlegur og umfram allt hafa gaman. Hann sagði einnig skemmtilegar sögur af sínum þríþrautarferli.

Gestir setningarhátíðarinnar hjóluðu síðan verkefnið formlega af stað frá Þróttarheimilinu og tóku hring í Laugardalnum.

Átakið stendur til 25. maí

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur nú hafið heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna í nítjánda sinn. Það stendur að vanda yfir í þrjár vikur eða til 25. maí. Á þeim tíma eru landsmenn hvattir til að hreyfa sig og nýta sér heilsusamlegar, umhverfisvænar og hagkvæmar samgöngur með því að hjóla, ganga eða nota annan virkan ferðamáta.

Átta keppnisflokkar

Í vinnustaðakeppni er fyrst og fremst keppt um flesta þátttökudaga hlutfallslega miðað við heildarfjölda starfsmanna á vinnustaðnum. Lágmarksfjöldi starfsmanna er 3.

Keppt er í átta keppnisflokkum út frá stærð vinnustaða.

Að auki er kílómetrakeppni þar sem keppt er á milli liða um annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra miða við fjölda liðsmanna í liði.

Líkt og á síðasta ári eru þeir sem vinna heiman frá sér hvattir til að byrja eða enda vinnudaginn á því að hjóla, ganga eða nýta annann virkan ferðamáta sem nemur kílómetrum til og frá vinnu.

Meginmarkmið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.

Nánari upplýsingar má finna á hjoladivinnuna.is

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2