fbpx
Laugardagur, nóvember 16, 2024
target="_blank"
HeimFréttirAtvinnulífÁsafl keypt og flutt í Mosfellsbæ

Ásafl keypt og flutt í Mosfellsbæ

Vinnuvélar og landbúnaður ehf. hefur keypt hafnfirska fyrirtækið Ásafl og flutt starfsemina að Völuteig 4 í Mosfellsbæ.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að markmiðið með kaupunum sé að leggja grunn að öflugu alhliða sölu og þjónustufyrirtæki við verktaka, sjávarútveg, landbúnað, sveitarfélög og græn svæði með öflugum hópi starfsmanna með mikla sérþekkingu.

Grunn Vinnuvéla og Landbúnaðar má rekja til stofnunar fyrirtækisins Vinnuvélar Tækjamiðlun árið 2014 en áherslan þar var á þjónustu við jarðvinnuverktaka, golfvelli og sveitarfélög með innflutning nýrra og notaðra tækja.

Ásafl var stofnað haustið 2007 og sérhæfði sig til að byrja með í sölu og þjónustu á vélum og búnaði fyrir minni báta og skip en síðar þróaðist reksturinn út í innflutning bryggju og bátakrana, sérhæfðra vinnuvéla, kerra og fl.

Örn H. Magnússon, sem var framkvæmdastjóri Ásafls, er nú sölumaður en framkvæmdastjóri Vinnuvéla og landbúnaðar er Finnbogi Magnússon.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2