Öllu starfsfólki bílaleigunnar Hertz á Íslandi var sagt upp fyrir helgi. Vísir greindi frá þessu og hefur eftir Sigfúsi Bjarna Sigfússyni, forstjóra félagsins, að nauðsynlegt hafi verið að grípa til þessa ráðs í ljósi aðstæðna. Algert hrun hafi verið í tekjum vegna faraldurs kórónuveirunnar. Vonaðist hann þó til að hægt verði að ráða sem flesta aftur um áramótin ef aðstæður leyfa en langtímaleiga hefur aukist á móti og sala bíla hefur gengið vel og því þarf að sinna.
Síðustu sumur hafi starfsmenn Hertz verið á milli 130 og 140 talsins, en umtalsvert færri nú í sumar vegna hruns í komu ferðamanna.
Starfsmennirnir hafa síðustu mánuði verið á hlutabótaleiðinni en sú aðgerð rennur út í lok næsta mánaðar. Þeir verða í fullu starfi á uppsagnarfresti, sem almennt eru þrír mánuðir, en á þeim tíma greiðir ríkið 85% af launum hafi fyrirtæki orðið fyrir a.m.k. 75% tekjuskerðingu.