Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að byrjað var að framleiða ál á Íslandi efndi Rio Tinto til fjölskylduhátíðar í álverinu í Straumsvík síðasta laugardag.
Áhuginn var mikill og öll bílastæði við álverið fylltust fljótt og fólk varð að leggja bílum sínum við Ásvelli og taka strætó þaðan í boði álversins.
Fólk gat farið í strætóferð um svæðið með leiðsögn og gengið um tæknivæddan steypuskálann, hægt var að kíkja inn í einn kerskálann auk þess sem hægt var að skoða hin ýmsu tól og tæki sem notuð eru við álframleiðsluna. En að sjálfsögðu var boðið upp á skemmtun, kassabílarallý, hoppukastala og Lúðrasveit Hafnarfjarðar blés og blés á meðan gestir fengu sér grillaðar pylsur og gos. Afmæliskaka var að sjálfsögðu í boði og rúsínan í pylsuendanum fyrir a.m.k. yngri kynslóðina voru þau Villi vísindamaður og Ronja ræningjadóttir.
Virtist mikil ánægja vera með daginn enda var stöðugur straumur af fólki á svæðið.