DB Schenker hélt upp á 150 ára afmæli fyrirtækisins á síðasta ári og af því tilefni ákvað starfsstöðin á Íslandi að fagna 150 mánaða afmæli sínu nú á haustmánuðum.
DB Schenker hefur síðustu árin starfrækt útibú einnar stærstu flutningsmiðlunar í heimi hér í Hafnarfirði. Móðurfélagið er með höfuðstöðvar í Þýskalandi. Þegar fyrirtækið var stofnað fyrir 150 árum kynnti það fyrst allra flutningafélaga þann möguleika að bjóða upp á safnsendingar, sem var nýlunda á þeim tíma. Fyrirtækið óx hratt og er í dag einn af leiðandi flutningsaðilum heims, með skrifstofur í yfir 130 löndum og meira en 76.000 starfsmenn. Starfsstöðvar eru um 2000 á öllum stærstu mörkuðum heims.
Aðgangur að þéttu flutningsneti
Frá opnun útibús DB Schenker á Íslandi 2011, hafa íslensk fyrirtæki haft aðgang að þéttu flutninganeti fyrirtækisins. Fyrirtækið getur því boðið viðskiptavinum sínum upp á hvers konar sjó-, flug- og landflutning um allan heim, hvort heldur er fyrir heilfarma eða lausavörur og leggur mikla áherslu á skilvirk tengsl milli allra flutningsaðila í aðfangakeðjunni. Þetta skiptir sköpum þegar um flóknari flutningsleið er að ræða, eða þegar tengja þarf landflutning við flutning á sjó eða í flugi. Fyrirtækið rekur einnig skjala- og tolladeild fyrir viðskiptavini félagsins.
Höfum vaxið mjög hratt
Hjá fyrirtækinu starfa í dag 16 starfsmenn með mikla reynslu á sviði flutninga og sérfræðinga í tollskýrslugerð. Framkvæmdastjóri DB Schenker á Íslandi er Valdimar Óskarsson. „Þetta hefur verið frábært tími, við höfum vaxið mjög hratt hvort sem það er í þjónustu við útflytjendur, þar sem mikil áhersla hefur verið lögð á kæli og frystiflutninga, eða til að tengja innflytjendur þéttofnu flutninganeti DB Schenker frá öllum heimsálfum. Fyrir um ári tókum við yfir vöruhúsið í Fornubúðum þar sem við tökum á móti innflutningsvörum og dreifum til viðskiptavina. Einnig hefur færst í vöxt að viðskiptavinir okkar notfæra sér þjónustu okkar í vöruhótelinu svo sem fyrir hýsingu á vöru eða lestun í gáma og vagna fyrir útflutningsvörur. Okkur hefur líkað ákaflega vel að starfa og dreifa vörum hér í Hafnarfirði enda vel staðsett til tenginga við hafnir og flugvöll. Stór hluti okkar starfsmanna býr hér í bæ,“ sagði Valdimar Óskarsson í samtali við Fjarðarfréttir.