Nýtt glæsilegt húsnæði HS Veitna rís nú að Selhellu 8 þar sem öll starfsemi Hafnarfjarðardeildarinnar verður framvegis en áður hefur starfsemin verið að Bæjarhrauni 14 og að Hjallahrauni 4 en það húsnæði hefur þegar verið selt.
Húsið er teiknað af GP arkitektum.
Júlíus Jón Jónsson forstjóri HS Veitna segir í samtali við Fjarðarfréttir að vonast sé til að verkstæðis- og lagerhlutinn verði tilbúinn í maí en skrifstofuhlutinn í júní nk.
„Starfsemin hefur verið á tveimur stöðum, um 200 m² verkstæðishúsnæði að Hjallahrauni 4 sem þegar hefur verið selt og svo svæðisskrifstofa og lager á Bæjarhrauni 14. HS Veitur hafa nýtt neðri hæðina á Bæjarhrauninu sem er tæplega 700 m² en leigt út efri hæðina sem er samtals um 400 m².
Á Selhellu 8 verður um 750 m² lager og verkstæði og um 450 m² skrifstofu- og starfsmannaaðstaða og síðan er milliloft í hluta húsnæðisins,” segir Júlíus.
Ástæður fyrir því að ráðist var í þessar breytingar voru voru að sögn Júlíusar nokkrar:
- Verkstæðið á Hjallahrauni var víkjandi vegna breytinga á deiliskipulagi.
- Óhagkvæmni fylgdi því að vera á tveimur stöðum með starfsemina.
- Lagerpláss á Bæjarhrauni var löngu sprungið.
- Aðkoma að lager á Bæjarhrauni var vægast sagt mjög erfið með alla stærri hluti og ófáir bílar hafa beyglast við þær tilfæringar.
- Bílastæðavandamál voru mikil og engin úrlausn í sjónmáli.
- Nýttum ekki sjálfir nema hluta Bæjarhraunsins, hentar ekki vel að vera á tveimur hæðum.
Í Hafnarfirði eru 14 starfsmenn HS Veitna hf.