Hafnfirska fyrirtækið SagaNatura ehf. varð til við sameiningu fyrirtækjanna SagaMedica heilsujurtir ehf. sem stofnað var árið 2000 og Keynatura ehf. sem stofnað var árið 2014.
Tilgangur með rekstri Sagamedica var að þróa og framleiða hágæða heilsuvörur úr íslenskum lækningajurtum og markaðssetja heima og erlendis. Að stofnun fyrirtækisins stóðu dr. Sigmundur Guðbjarnason, dr. Steinþór Sigurðsson, Bændasamtök Íslands, Ævar Jóhannesson og Þráinn Þorvaldsson. Var starfsemin byggð á grunni rannsókna sem dr. Sigmundur lífefnafræðingur og fyrrum rektor Háskóla Íslands, hóf árið 1992. Þekktasta vörumerki fyrirtækisins var SagaPro en fyrirtækið hefur náð góðum árangri í útflutningi á sínum vörum.
Keynatura var sprotafyrirtæki sem stofnað var af nokkrum aðilum með þekkingu úr mismunandi áttum. Fyrirtækið tók þátt í Startup Energy Reykjavík viðskiptahraðlinum í byrjun árs 2015 en þar fengu sjö fyrirtæki fimm milljónir króna í hlutafé, ókeypis skrifstofuaðstöðu og aðstoð yfir 60 aðila úr atvinnulífinu og akademíunni yfir tólf vikna tímabil. Þetta nýtti fyrirtækið sér vel og tryggði sér svo rekstrarfjármagn frá Eyri Sprotum.
Fyrirtækið byggði upp þörungaframleiðslu í Hafnarfirði en vörur fyrirtækisins innihalda náttúrulegu þörungaafurðina astaxanthin sem fyrirtækið framleiðir en það er öflugasta andoxunarefni sem fyrirfinnst í náttúrunni.
Það var svo árið 2017 að fyrirtækin tvö hófu formlegt samstarf með það að markmiði að ná ávinningi af samnýtingu á þverfaglegri þekkingu á sviði rannsókna, framleiðslu og sóknarfærum á innlendum sem og erlenda markaði. Ári síðar voru fyrirtækin sameinuð undir nafni SagaNatura.
SagaNatura þróar og framleiðir íslensk fæðubótarefni og heilsuvörur úr þörungum og heilsujurtum. Þörungarnir eru ræktaðir hér í Hafnarfirði og notuð er lífræn ætihvönn úr Hrísey.
200 milljón kr. Evrópusambandsstyrkur
Nýlega hlaut SagaNatura 200 milljóna króna styrk úr H2020 áætlun Evrópusambandsins sem nefnist SME Instrument. SagaNatura var á meðal þúsunda fyrirtækja sem sótti um þessa styrkveitingu og er þetta því mikil viðurkenning fyrir fyrirtækið.
„Dr. Steinþór Sigurðsson, vísindamaður hjá SagaNatura, hefur uppgötvað áður óþekkt efni í íslenskri ætihvönn sem hefur slakandi virkni á þvagblöðru. Við höfum nú sótt um einkaleyfi á notkun þessa efnis fyrir ofvirka blöðru. Styrknum verður varið í að sanna virkni efnisins, hanna nýja vöru með stöðluðu magni af þessu virka efni og framkvæma 200 manna klíníska rannsókn á fólki með ofvirka blöðru. Styrkurinn mun einnig nýtast í að hefja ræktun og kynbætur á hvönn með því markmiði að auka magn þessa virka efnis. Tilgangur verkefnisins er að hjálpa þeim sem kljást við ofvirka blöðru með náttúrulegri lausn sem er án allra aukaverkanna. Þeim sem kljást við ofvirka blöðru er oftar mál og þurfa að pissa á nóttunni, en talið er að um 10% mannkyns hafi ofvirka blöðru sem svarar til 500 milljóna einstaklinga. Tíðni þessa sjúkdóms eykst með hækkandi aldri,“ segir Sjöfn Sigurgísladóttir framkvæmdastjóri SagaNatura.
Vöruþróun
Undanfarið hefur fyrirtækið verið að breyta umbúðum en flestar vörur sem seldar eru undir merkinu KeyNatura eru nú í umhverfisvænum áldósum.
Af framleiðsluvörum fyrirtækisins má nefna SagaPro, SagaFemme og SagaMemo, AstaLýsi, AstaEye, AstaCardio, AstaFuel, AstaSkin og Íslenskt Astaxanthin auka Voxis hálstaflna og hálsmixtúru. Fyrirtækið selur einnig hrávörur og sínar vörur undir merkjum annarra og þá mest til útlanda.
SagaPro og SagaFemme hafa getið sér gott orð fyrir að gagnast gegn of tíðum þvaglátum. Hins vegar eru AstaEnergy og AstaFuel m.a. ætlaðar íþróttafólki. AstaEnergy er sagt hjálpa til með endurheimt eftir erfiðar æfingar sem þýðir að íþróttafólk er fljótara að koma sér af stað eftir æfingu auk þess sem varan bætir bæði þol og styrk. AstaFuel er vökvablanda sem sögð er henta vel þeim sem stunda æfingar, eru að fasta eða eru á ketó mataræði.
Nánari upplýsingar um vörurnar má finna á keynatura.is
Aukinn vöxtur
Fyrirtækið hefur stækkað hratt og hefur húsnæðisþörfin aukist. Fyrirtækið er með um 1.000 m² húsnæði við Suðurhellu og nýtir einnig önnur lagerhúsnæði.
Starfsfólk fyrirtækisins hefur þróað eldisker fyrir þörungaframleiðsluna sem taka mun minna rými en hefðbundnar aðferðir með glerrörum. Tryggvi E. Mathiesen framleiðslustjóri Saganatura ehf. hefur unnið að þróun kerjanna. Kerin eru lokuð og við framleiðsluna eru notaðir ljóstvistar (LED) og þó þeir taki langtum minna rafmagn en hefðbundnar perur þá er fjöldinn svo mikill að HS Veitur þurftu að byggja sérstaka spennistöð utan við fyrirtækið til að geta afhent nægilegt afl. Þurrkferillinn er líka þróaður af starfsfólki fyrirtækisins en mikilvægt var að hanna þurrkara sem lágmarkaði niðurbrot andoxunarefnisins astaxanthins sem er mjög hvarfgjarnt eins og andoxunarefni eru í sjálfu sér.