fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirAtvinnulífVon fékk hvatningarverðlaun MSH í ár

Von fékk hvatningarverðlaun MSH í ár

Þrjár viðurkenningar einnig veittar

Hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar voru veitt fjórða árið í röð í dag.

Verðlaunin eru veitt fyrirtæki, félagi eða einstaklingi sem lyft hefur bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum og þannig gert bæinn að betra samfélagi.

Bjartur Guðmundsson

Markaðsstofan bauð upp á áhugaverðan fyrirlestur Bjarts Guðmundssoar, leikara og sérfræðings í árangurs- og ánægjufræðum, um jákvætt hugarfar. Kenndi hann ma. viðstöddum að auka endorfínmagn í líkamanum á einfaldan hátt.

Áheyrendur fengu að taka virkan þátt í fyrirlestri Bjarts.
Eva Michelsen verkefnastjóri St Jó lífsgæðaseturs, Kristjana Þura Bergþórsdóttir og Einar Hjaltason eigendur að VON mathúsi, Sveinn Sigurbergsson í Fjarðarkaupum og Þorgeir Haraldsson.

Von mathús

Það var nokkur spenna þegar kynnt var hver hlyti hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar 2020 en líklega voru viðstaddir þó ekkert hissa þegar þau voru veitt veitingahúsinu Von sem hefur vakið mikla athygli á veitingageiranum í Hafnarfirði.

Kristjana Þura og Einar í VON, handhafar hvatningarverðlauna MSH 2020.

Í umsögn dómnefndar sagði m.a. að þau Einar Hjaltason og Kristjana Þura Bergþórsdóttir hafi opnað Von mathús í desember 2015 í gömlu iðnaðarhúsnæði við Strandgötu, sem staðið hafði tómt í nokkur ár. „Það er óhætt að segja að staðurinn hafi staðið við stóra nafnið sem þau gáfu honum og gott betur. Von mathús hefur stimplað sig rækilega inn í þá frábæru flóru veitingastaða sem er að finna í Hafnarfirði og hefur verið drifkraftur í nýtingu á árstíðabundinni matargerð og hráefnanotkun svo eftir hefur verið tekið. Von hefur þannig bæði náð að hafa áhrif á bæjarbrag og bragðlauka Hafnfirðinga auk þess að setja bæinn endanlega á kort matgæðinga, hvort heldur sem eru erlendir ferðamenn eða íbúar af höfuðborgarsvæðinu öllu.”

Þrjár viðurkenningar

Auk hvatningarverðlaunanna veitti markaðsstofan þrjár viðurkenningar til aðila sem valdir voru úr innsendum ábendingum. Þær fengu:

  • Fjarðarkaup – sem starfað hefur í bænum frá 1973
    „Fjarðarkaup leggur mikla áherslu á góða þjónustu og mikið vöruúrval, enda skilgreinir verslunin sig sem þjónustuverslun. Frá opnun hefur Fjarðarkaup náð að verða gildandi samkeppnisaðili á íslenskum matvörumarkaði, fyrst og fremst með því að höfða til þeirra gilda sem upphaflega var lagt upp með, þjónustu og vöruúrval. Á Íslandi eru örfáar matvöruverslanir sem hafa náð að þróa með sér og móta sín eigin sérkenni og menningu og sem viðskiptavinir tengjast sérstökum tryggðarböndum.“
  • St. Jó lífsgæðasetur – sem opnað var á síðasta ári
    „Það var ljóst að það þyrfti að vanda til verka með þá starfsemi sem myndi hæfa þessari virðulegu byggingu og þeim endurbótum sem ráðist var í. Í húsinu er nú fjölbreytt og lifandi starfsemi á sviði heilsuverndar og sköpunar í samræmi við heilsustefnu Hafnarfjarðar. Lífsgæðasetrið er samfélag sem býður upp á forvarnir, heilsuvernd, snemmtæka íhlutun, fræðslu og skapandi setur. Allir rekstraraðilar eiga það sameiginlegt að auka lífsgæði fólks með einum eða öðrum hætti.“
  • Þorgeir Haraldsson – formaður handknattleiksdeildar Hauka sl. 20 ár
    „Þorgeir Haraldsson hefur verið formaður handknattleiksdeildar Hauka til fjölda ára og á stóran þátt í þeirri velgengni sem Haukar hafa átt á síðustu tveimur áratugum. Hann hefur setið í stjórn HSÍ auk þess sem hann hefur sinnt ótal verkefnum fyrir handknattleikshreyfinguna alla. Þorgeir hefur sýnt það bæði í orði sem og á borði að hagsmunir heildarinnar skipta höfuðmáli þegar ná þarf árangri og er óumdeildur í stöðu burðarása í íslenskum handknattleik.“

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2