fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirBæjarlistamaður heiðraður á fjörugu konukvöldi í verslunarmiðstöðinni Firði - MYNDASYRPA

Bæjarlistamaður heiðraður á fjörugu konukvöldi í verslunarmiðstöðinni Firði – MYNDASYRPA

Konukvöld var haldið í verslunarmiðstöðinni Firði sl. föstudagskvöld.

Mikið var um dýrðir, skemmtiatriði, vörukynningar, happdrætti og tilboð í verslunum og hátíðarstemming.

Ný glæsileg verslun, Noma, opnaði á konukvöldinu en verslunin sérhæfir sig í alls kyns ilmum og snyrtivörum og fékk mjög góðar móttökur að sögn Vallýjar Hannesar, eins eigenda Noma.

Vallý Hannesar, annar eigandi Noma

Vigga og Sjonni skemmtu með fallegum söng og gítarleik sem ómaði um Fjörð, dansarar frá Plié dansskólanum sýndu listir sínar, Elvis Prestley eftirherma heillaði konur upp úr skónum og þá tókst Bjarna Ara ekki síður að heilla viðstadda með glæsilegum söng og hressilegri framkomu.

Vigga og Sjonni

Vörukynningar voru á göngum og mikið um að vera í verslunum sem buðu upp á hressingu og voru með sérstök tilboð.

Undir lok kvöldsins var nýútnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar, Pétur Gautur, heiðraður af verslunarmiðstöðinni Firði og 220 Firði sem stendur að stækkun Fjarðar. Voru honum færð blóm og gjafir.

Pétur Gautur, bæjarlistamaður Hafnarfjarðar var heiðraður.

Glæsilegt vöruhappdrætti sló svo botninn í fjörið og það voru þær Tinna Líf, Ester, Edith og Sólrún sem hömpuðu glæsilegum vinningum í lokin.

Verðlaunahafar í happdrættinu, f.v.: Tinna Líf, Ester, Edith og Sólrún og Tinna Valdís ásamt Guðmundi Bjarna, framkvæmdastjóra í Firði og Marinellu Haraldsdóttur stjórnarkonu í 220 Firði.

Að sögn Guðmundar Bjarna, framkvæmdastjóra Fjarðar, heppnaðist konukvöldið mjög vel og kvaðst hann ánægður með þátttökuna.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2