fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirBanaslys á Reykjanesbrautinni í morgun

Banaslys á Reykjanesbrautinni í morgun

Tveir slasaðir eftir árekstur á einbreiðri Reykjanesbrautinni

Einn lést og tveir slösuðust í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á Reykjanesbraut, þar sem hún er einbreið, austan við Brunnhóla, í morgun.

Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 06.48 í morgun. Talið er að annarri bifreiðinni hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming og lent á hinum sem kom úr gagnstæðri átt.

Sá sem lést var farþegi í annarri bifreiðinni, en ekki er hægt að greina frá líðan ökumannanna að svo stöddu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2