Íbúa á Breiðvangi 10 var mjög brugðið við aðkomu að bíl sínum í morgun. Var þá búið að rispa hann djúpum rispum á húdd, þak og hliðar.
Telur eigandinn að þetta hafi gerst í nótt eða seint í gærkvöldi.
Ef einhverjir hafa séð til skemmdarvargsins er sá beðinn um að hafa samband við lögreglu.