fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirBónus hefur opnað nýja verslun við bæjarmörkin

Bónus hefur opnað nýja verslun við bæjarmörkin

2.300 m² verslun á Miðhrauni gegnt Góu

Bónus opnaði nýja verslun að Miðhrauni 24 í Garðabæ sl. laugardag í nýju húsi sem liggur milli Suðurhrauns og Álftanesvegar, gegnt húsnæði Góu.

Þetta er 33 Bónusverslunin  og er byggð á grænum grunni, samtals 2.300 m², og er hönnuð til að mæta síbreytilegum þörfum neytenda.

Í tilkynningu frá Bónus segir að verslunin innihaldi allar nýjungar sem að Bónus hafi upp á að bjóða og má þar nefna Gripið & Greitt sem gerir viðskiptavinum kleift að versla í matinn beint í pokann og greiða svo fyrir vörurnar í sjálfsafgreiðslugerðinu. Bónus hefur á íslenskum dagvörumarkaði einnig leitt skiptinguna úr freoni yfir í íslenska kolsýru í kælikerfum en allir kælar í nýrri verslun eru knúnir áfram með íslenskri kolsýru. Að sama skapi er verslunin lýst upp með LED ljósum sem dregur úr raforkunotkun auk þess sem að flestar hillurnar eru annaðhvort smíðaðar hér á landi eða endurnýttar úr öðrum verslunum Bónus.

Verslun í alfaraleið

„Við erum afar stolt af þessari nýju verslun okkar í Miðhrauni en við hönnun verslunarinnar var hugað vel að því að hver fermetri væri nýttur á sem bestan hátt, kælar verslunarinnar eru stórir og rúma vel þær íslensku framleiðsluvörur sem skipa mjög stóran sess í vöruvali okkar, sérstaklega íslenskar landbúnaðarvörur.  Svo er verslunin í alfaraleið hvort sem er fyrir Garðbæinga og Hafnfirðinga eða alla þá sem eiga leið um svæðið. Bónus er ávallt með umhverfið í öndvegi og reynum við að skilja sem minnst umhverfisfótspor eftir okkur. Má þar nefna kælikerfin, lýsinguna, hillunar og svo endurnýtum við allar þær umbúðir sem falla til í rekstri,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2